„Stafræn gerð“: Munur á milli breytinga

Úr Nordterm
m korrigerade länken till grönländska sidan
 
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 16: Lína 16:
[[en:Digitisation]]
[[en:Digitisation]]
[[fi:Digitalisointi]]
[[fi:Digitalisointi]]
[[is:Stafrænn]]
[[is:Stafræn_gerð]]
[[kl:Digitalisering]]
[[kl:Digitalinngortiterineq]]
[[no:Digitalisering]]
[[no:Digitalisering]]
[[se:Digitalisering]]
[[se:Digitaliseren]]
[[sv:Digitalisering]]
[[sv:Digitalisering]]

Nýjasta útgáfa síðan 10. maí 2012 kl. 13:37

Ráðstefnurit Nordterm gerð stafræn

Árið 2005 hófst verkefni, með styrk frá Nordplus, sem miðar að því að vinna kerfisbundið að því að gera ráðstefnurit Nordterm stafræn og safna þeim saman í eina heild ásamt með textum um íðorðafræði og hagnýta íðorðavinnu. Slíkt heildarsafn myndi einnig þjóna þeim tilgangi að:

  • veita á einfaldan hátt ókeypis aðgang að greinum um ólík svið innan íðorðafræði (kenningar, aðferðir og hagnýt tilvik)
  • stafræn vinnsla og varðveisla innihaldsins auðveldar leit í ritunum, t.d. á sérhæfðu efni. Það hefur ekki verið mögulegt áður þar sem í ritin vantar í flestum tilvikum bæði atriðaskrá og efnisyfirlit
  • gefa mynd af því hvernig kenning og aðferðafræði innan íðorðafræði hefur þróast í norrænu löndunum síðustu 20 árin
  • styrkja stöðu norrænna þjóða gagnvart íðorðafræði í Evrópu og e.t.v. hvetja til þess að þýða þessar norrænu greinar á önnur tungumál.

Áhrif þess að gera þetta efni aðgengilegra verða mikil fyrir alla sem áhuga hafa á íðorðafræði og íðorðavinnu í norrænu löndunum og í öðrum löndum. Auðveldara verður fyrir áhugasama að ná í fjölda greina sem enn kann að vera áhugaverðar hvað varðar rannsóknir og menntun.

Íðorðamiðstöð TNC hefur í samráði og samvinnu við aðra aðilja Nordterm hafið verkið með því að skanna inn nokkur rit sem ekki eru lengur til sölu. Vinna við útgáfu þeirra á vefsíðum Nordterm verður unnin smám saman, m.a. vegna þess að enn vantar heimildir frá höfundum.