Munur á milli breytinga „Skipulag“
[óskoðuð útgáfa] | [óskoðuð útgáfa] |
(Ný síða: == Markmið og umfang starfsemi Nordterm == Meginmarkmið Nordterm er að vera norrænn upplýsingamiðill fyrir íðorðastarfsemi. Til að svo megi verða mun Nordterm: * stuðla að...) |
|||
Lína 18: | Lína 18: | ||
Kjarninn í Nordterm er miðstöðvar íðorðastarfs á Norðurlöndum: | Kjarninn í Nordterm er miðstöðvar íðorðastarfs á Norðurlöndum: | ||
− | * Terminologigruppen, Danmörku | + | * [http://www.danterm.dk/ Terminologigruppen], Danmörku |
− | * Sanastokeskus TSK / Terminologicentralen TSK, Finnlandi | + | * [http://www.tsk.fi/tsk/ Sanastokeskus TSK] / Terminologicentralen TSK, Finnlandi |
− | * Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, skrifstofa Íslenskrar málnefndar, Íslandi | + | * [http://www.arnastofnun.is/ Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum], skrifstofa Íslenskrar málnefndar, Íslandi |
* Språkrådet, Noregi | * Språkrådet, Noregi | ||
− | * Samisk språknemnd, Noregi | + | * [http://www.giella.org/artikkel.aspx?MId1=1080&AId=1837 Samisk språknemnd], Noregi |
− | * Terminologicentrum TNC, Svíþjóð | + | * [http://www.tnc.se/ Terminologicentrum TNC], Svíþjóð |
Auk þess taka fjölmargar aðrar stofnanir og einstaklingar þátt í starfsemi Nordterm. | Auk þess taka fjölmargar aðrar stofnanir og einstaklingar þátt í starfsemi Nordterm. |
Útgáfa síðunnar 17. september 2010 kl. 10:48
Markmið og umfang starfsemi Nordterm
Meginmarkmið Nordterm er að vera norrænn upplýsingamiðill fyrir íðorðastarfsemi. Til að svo megi verða mun Nordterm:
- stuðla að samvinnu á Norðurlöndum á sviði íðorðafræða með því að skiptast á upplýsingum, reynslu og niðurstöðum, með samstarfsverkefnum og á ráðstefnum og málþingum
- tryggja áhrif og og alþjóðlegt hlutverk Norðurlandaþjóða í þróun íðorðafræða með því að samræma krafta og mynda sameiginlegar viðmiðunarreglur
- vinna að rannsóknum í íðorðafræði, hagnýtu íðorðastarfi, menntun í íðorðafræði og annarri starfsemi sem tengist íðorðafræði.
Mikilvægast í starfsemi Nordterm er Nordterm-þingið sem kemur saman annað hvert ár. Nordterm-þingið er vettvangur sem er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á íðorðastarfi á Norðurlöndum. Í tengslum við Nordterm-þingið er skipulögð norræn íðorðaráðstefna.
Nordterm tekur virkan þátt í stöðlun íðorða og ýmsar af samstarfstofnunum Normdterm eru fulltrúar á ólíkum sviðum í ISO/TC 37.
Hér má lesa reglur Nordterm.
Aðiljar að Nordterm
Kjarninn í Nordterm er miðstöðvar íðorðastarfs á Norðurlöndum:
* Terminologigruppen, Danmörku * Sanastokeskus TSK / Terminologicentralen TSK, Finnlandi * Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, skrifstofa Íslenskrar málnefndar, Íslandi * Språkrådet, Noregi * Samisk språknemnd, Noregi * Terminologicentrum TNC, Svíþjóð
Auk þess taka fjölmargar aðrar stofnanir og einstaklingar þátt í starfsemi Nordterm.
Stjórnarnefnd
Stjórnarnefnd Nordterm er æðsta stofnun samtakanna sem samhæfir starfsemina og er fulltrúi Nordterm út á við. Stjórnarnefndin er skipuð einum fulltrúa frá hverjum samstarfsaðilja.
Í stjórnarnefnd Nordterm 2009–2011 sitja:
* Danmörk: Bodil Nistrup Madsen, DANTERMcentret * Finnland: Katri Seppälä, TSK (formaður) * Ísland: Ágústa Þorbergsdóttir, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum o varamaður: Ari Páll Kristinsson, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum * Noregur: Jan Hoel, Språkrådet o varamaður: Sylvi Dysvik, Språkrådet * Svíþjóð: Anna-Lena Bucher, TNC * Samaland: Laila Palojärvi, Samískri málnefnd
Vinnuhópar
Íðorðastarfsemi fer fram í vinnuhópum Nordterm.
Vinnuhópar Nordterm eru:
* AG1 — Íðorðarannsóknir og íðorðamenntun o Formaður: Nina Pilke, Vasa universitet o Varaformaður: Marita Kristiansen, Norges Handelshøyskole o Ritari: Åsa Holmér, TNC * AG2 — Íðorðatól o Formaður: Peter Svanberg, TNC o Ritari: Gisle Andersen, Aksis/Unifob, Universitetet i Bergen * AG5 — Internetupplýsingar hjá Nordterm o Formaður: Mari Suhonen, TSK o Ritari: Henrik Nilsson, TNC